Íslendingur hefur varað landa sína við svindli sem hann segir að viðgangist á Flamingo Beach Mate-hótelinu á Tenerife.
„Ég vil eindregið vara fólk við óforskammaðri sölumennsku sem er stunduð þessi misserin á Flamingo Beach Mate.“ segir hann í Facebook-hóp ætluðum Tenerife förum.
„Í stuttu máli eru þeir að bjóða gestum á hótelinu að kaupa 5 vikur með eingreiðslu á korti sem eru á milli 6 og 700.000. Gisting þessi á að vera á Tenerife og svo viða á hótelum um allan heim.“ útskýrir hann og bætir við: „Þú mátt svo nota eina viku í fyrstu atrennu en þá vilja þeir annan fund og selja þér enn stærri pakka sem kostar um 1.700.000.“
Síðan segir hann að ef maður neiti seinni greiðslunni séu engar líkur á að maður geti nýtt sér vikurnar fjórar sem maður hafi keypt, nema í mexíkó, þrjár til sjö nætur í senn.
„Þetta er í raun mjög vel útfært og sannfærandi pýramidasvindl!“ segir hann.
„Þér er úthlutað sér aðgangi að vefslóð sem á að veita þér aðgang að hótelum víða um heim en þegar þú skráir þig inn og leitar er ekkert laust á næstu þremur árum. (ein nótt í Portugal og vika í Mexico…á næstu þremur árum) En þetta telja þeir bara eðlilegt, og til að þú tapir ekki peningunum þá bjóða þeir þér stærri pakkann og þeir eru mjög sannfærandi og einstaklega óforskammaðir vitandi það að þetta er bara scam.“
Síðan segir hann að tölvupóstum sé ekki svarað „og því borið við að það komi svo mikið af póstum að það sé bara ekki hægt að svara þeim.“
Ofan á það segir hann nánast engar líkur á að maður muni nokkurn tíma fá gistinguna, og það sama megi segja um endurgreiðslu.
„Svo ef þið fáið boð um að hitta starfsmann hótelsins þá skuluð þið einfaldlega neita!
Þetta er eitt stórt svindl!“ segir hann að lokum.