Íslendingar á Spáni segja þetta miklu verra en síðustu ár: „Þetta er eiginlega ekki hægt“

Íslendingasamfélagið á Spáni upplifir nú miklar hitabylgjur. Fréttablaðið fjallar um máliðog hefur þetta eftir Má Elíssyni öryggis og þjónustufulltrúa félags húseigenda á Spáni.

„Þetta er búið að vera illþolandi. Við erum eiginlega bara búin að vera meira inni en úti. Þetta er eiginlega ekki hægt,“ segir hann og bætir við að hjá sér í Torrevieja á Costa Blanca ströndinni á suðaustur Spáni fari hitinn upp í 36 til 37 gráður.

Í frétt Fréttablaðisns kemur fram að öflugt samfélag Íslendinga sé starfrækt á Costa Blanca svæðinu og að Facebook-síða hópsins telur yfir 13 þúsund manns.

„Við sem búum hérna og erum hérna mikið við erum farin að þekkja þetta. Það þarf eiginlega ekki að margítreka þetta við okkur en við fylgjumst öll vel með. En þetta er miklu verra en síðustu ár,“ segir Már og bætir við:

„Alveg eins og rigningin sem var hérna í mars og apríl, hún var sú lengsta í manna minnum og þessi hiti er sá mesti í manna minnum svona snemma árs.“

Hægt er að lesa umfjöllun Fréttablaðsins um málið í heild sinni hér