Frá því í byrjun febrúarmánaðar hefur krónan veikst um 18,8 prósent gagnvart evru og hefur þessi veiking krónunnar haft veruleg áhrif á þá fjölmörgu íslensku lífeyrisþega sem búsettir eru á Spáni.
Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag og rætt við Íslendinga sem búsettir eru á Costa Blanca á Spáni. Einn þeirra er Karl Kristján Guðmundsson sem býr á Torrevieja ásamt eiginkonu sinni., „Þeir sem ekki eru farnir, þeir taka þetta á sig en þola ekki mikið meira,“ segir hann.
Karl nefnir að þetta hafi sérstaklega slæm áhrif á þá sem eru á örorkubótum ein einnig lífeyrisþega sem búa einir.
Þá er rætt við Má Elíasson sem sem hefur átt hús á Costa Blanca frá árinu 2013 ásamt eiginkonu sinni. „Minnstu ekki á það,“ hefur Morgunblaðið eftir honum þegar hann er spurður hvort hann hafi fundið fyrir áhrifum af veikingu krónunnar gagnvart evru. „Þetta er svaðalegur skellur,“ segir hann.
Már segir að þau hjónin byggi allt sitt á tekjum frá Íslandi. Staðan nú sé þannig að þau tapi um 50 þúsund krónum á mánuði, hvort um sig, vegna veikingar krónunnar.