„Íslendingar eru æðislegir, þeir vilja gefa manni allt og eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að hjálpa manni,“ sagði ísraelski ævintýramaðurinn Roei Sadan eftir að hafa hjólað í kringum landið sumarið 2017.
Fréttablaðið greinir frá því að þessi mikli Íslandsvinur og ótrúlegi afreksmaður sé látinn eftir hafa orðið fyrir bíl í heimalandi sínu, Ísrael, í vikunni. Hann var 39 ára.
Sadan öðlaðist heimsfrægð árið 2007 þegar hann hóf ferðalag sitt um heiminn á reiðhjóli. Ferðalagið stóð yfir í fjögur og hálft ár og lagði hann að baki 66 þúsund kílómetra og 42 lönd.
Árið 2015, þegar hann var staddur í Himalaya-fjallgarðinum, dundi ógæfan yfir en á fjallinu Stok Kangri skrikaði honum fótur með þeim afleiðingum að hann datt nokkur hundruð metra. Hann slasaðist illa og var haldið sofandi í tvo mánuði eftir slysið. Hann gafst þó ekki upp og náði undraverðum bata.
Árið 2017 settist hann aftur á hjólið og kom til Íslands ásamt bróður sínum þar sem þeir hjóluðu um landið. Gerð var heimildarmynd um reisuna sem kom út síðla árs 2017. Í viðtali við Stuck In Iceland eftir að myndin kom út talaði hann meðal annars um ferðalagið og land og þjóð.
„Ísland var ótrúlegt, mjög fallegt, eins og við bjuggumst við,“ sagði hann og talaði ákaflega vel um íslensku þjóðina. „Íslendingar eru æðislegir, þeir vilja gefa manni allt og eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að hjálpa manni.“
Í frétt BBC í kvöld kemur fram að Sadan hafi verið á reiðhjóli þegar hann varð fyrir strætisvagni eða rútubifreið skammt frá heimili sínu í Ísrael á miðvikudag. Hann var fluttur lífshættulega slasaður þar sem hann lést af sárum sínum í dag.