Ís­lands­mót á blá­þræði: Skák ekki flokkuð sem í­þrótt

Ekki hafa borist endan­leg svör frá stjórn­völdum um það hvort skák­starf full­orðinna megi hefjast. Stjórn Skák­sam­bands Ís­lands stefnir á að bæði lands­liðs- og á­skor­enda­flokkur Skák­þings Ís­lands, hið eigin­lega Ís­lands­mót, fari fram dagana 22. til 30. ágúst.

„Skák­sam­band Ís­lands skilaði inn sótt­varnar­á­ætlun til heil­brigðis­ráðu­neytisins fyrir helgi og óskaði eftir leyfi til að hefja skák­starf í sam­ræmi við undan­þágur um í­þrótta­starf. Það virðist flækja málin að SÍ er utan ÍSÍ en í gegnum tíðina hefur Skák­sam­bandið verið skil­greint sem í­þrótta­sam­band að hálfu mennta­mála­ráðu­neytis þrátt fyrir það,“ segir í frétt á vef Skák­sam­bands Ís­lands.

Þar segir að málið sé í far­vegi innan heil­brigðis­ráðu­neytisins sem þarf að af­greiða undan­þágu fyrir Skák­sam­bandið. Vonast er til þess að já­kvætt svar berist fyrir lok vinnu­dags í dag.

„Ef já­kvæð undan­þága berst í dag fer fram lands­liðs­flokkur fram í Álftana­nes­skóla og á­skor­enda­flokkur fram í skák­höll TR. Mótin hefjast á laugar­daginn. Þegar svar berst eru komnar leið­beiningar fyrir Skák­sam­bandið og aðildar­fé­lög þess um skák­starf miðað við nú­verandi sótt­varnar­legur,“ segir í fréttinni og því bætt við að skák­mönnum sé þökkuð þolin­mæðin.