Íslandshótel sökuð um að beita valdi til að hylma yfir verkfallsbrot: Efling segir að þetta hafi gerst þegar þau komu upp á sjöttu hæð

Verkfallsverðir Eflingar urðu í dag vitni að ásetningsbrotum Íslandshótela gagnvart verkfallsaðgerðum félagsins. Var verkfallsvörðum meinaður aðgangur að rýmum og fyrirskipað án raka að aðeins mættu tveir verkfallsverðir fara inn á hvert hótel í einu. Þetta segir í yfirlýsingu frá Eflingu.

„Tilgangur fyrirtækisins með þessu var augljóslega að hlyma yfir verkfallsbrotum. Fulltrúar Íslandshótela veifuðu bréfi undirrituðu af Halldóri Benjamín Þorbergssyni framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins sér til varnar.“

Í tilkynningunni er sagt frá því þegar verkfallsverðir komu á sjöttu hæð Fosshótels í dag.

„Verkfallsverðir komu á 6. hæð hótelsins að starfsfólki sem hafði verið fyrirskipað af stjórnendum að ganga í störf Eflingarfélaga í verkfalli, sem er verkfallsbrot. Óskuðu verkfallsverðir eftir að ræða við starfsfólkið og biðja það að taka ekki þátt í verkfallsbrotum. Ýtti þá öryggisvörður Íslandshótela verkfallsvörðum með handafli af vettvangi.“

Í kjölfarið komu Eflingarfélagar saman fyrir framan hótelið og kröfðust þau þess að verkfallsverðir myndu fá að fara inn á hótel Íslandshótela fimm saman í hóp. Í tilkynningunni segir að orðið hafi verið við þeirri kröfu.

„Félagið hafnar með öllu ósannindum sem Íslandshótel hafa sent til fjölmiðla í dag um að verkfallsverðir Eflingar hafi haft uppi ótilgreindar „hótanir“. Slíkt er hreinræktaður uppspuni og dæmigert fyrir villandi upplýsingar fyrirtækisins til starfsfólks síns og almennings á síðustu viku.“