Níu af hverjum tíu krónum í arði dóttur Þórarins Friðrikssonar runnu í gjöld og skatta, þar af hirti Íslandsbanki meirihlutann af öllum arðinum. Hann segir í samtali við Morgunblaðið í dag að bankarnir stundi okur með því að bæta við umsýslugjaldi og öðrum þóknunum á fjárfestingar.
„Mér fannst þetta aðallega hálfspaugilegt, en jú, auðvitað var þetta pínu súrt,“ sagði Þórarinn. Hann telur að þetta dragi úr vilja ungs fólks til að fjárfesta: „Þessir krakkar eru að kaupa bréf og reyna að stimpla sig inn á markaðinn. Læra inn á þetta og svo þegar þau sjá þetta, þá er það pínu högg.“