Sundsamband Íslands kaus með tillögunni um að banna trans konum að keppa á afreksstigi í kvennaflokki í kosningu Alþjóðasundsambandsins um helgina.
Þetta staðfesti Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands, í samtali við Fréttablaðið í dag.
„Við vorum með fulltrúa á okkur vegum á þinginu sem kaus með þessari tillögu líkt og aðrar skandinavískar þjóðir. Það er ekki verið að banna trans konum að taka þátt í sundi, heldur að banna þeim að taka þátt í kvennagreinum afreksstigi á grundvelli þess að það sé ósanngjarnt fyrir konur að keppa gegn einstaklingum sem hafa farið í gegnum kynþroskaskeiðið í öðru kyni,“ segir Björn í samtali við Fréttablaðið.
Alþjóðasundsambandið, FINA, kynnti í dag reglur um að banna trans fólki að keppa í karla- og kvennaflokki á afreksstigi. Alls tóku 152 sambönd þátt í kosningunni og hlaut tillagan samþykki hjá 71 prósent fundagesta.
Samkvæmt rannsókn sem var kynnt á ársþingi FINA var hægt að mæla forskot hjá einstaklingum sem höfðu tekið út kynþroskaskeiðið áður en þau fóru í gegnum kynjaleiðréttingu.
„Flestir sem voru á ráðstefnunni kusu á þennan hátt, en grundvöllur fyrir þessari kosningu var stofnun vinnuhóps sem er mun skoða alla vinkla þessarar ákvörðunar. Vinnan heldur því áfram við nánari útlistun þessarar ákvörðunar,“ segir Björn enn fremur.
Samtökin '78 lýsa yfir vonbrigðum með ákvörðun Sundsambands Íslands, að greiða atkvæði með tillögu um að banna trans konum að keppa í sundi á afreksstigi í kvennaflokki.
Sundsamband Íslands átti ekki samtal við fulltrúa Samtakanna '78 áður ákvörðunin var tekin að sögn Tótlu I. Sæmundsdóttur, fræðslustýri Samtakanna '78.
„Þetta er gríðarlega sorglegt og í andstöðu við stefnu ÍSÍ,“ segir Tótlaí samtali við Fréttablaðið.