Ísland endaði í 4. sæti í Eurovision

Lagið 10 Years með Daða og Gagnamagninu hafnaði í 4. sæti Euro­vision þetta árið. Þetta er besti árangur Íslands í keppninni frá árinu 2009 þegar Jóhanna Guð­rún Jóns­dóttir flutti lagið Is It True? og hafnaði í 2. sæti. Þess má til gamans geta að Ísland hafnaði líka í 4. sæti árið 1989 þegar Stjórnin keppti fyrir Íslands hönd í Sviss með lagið Eitt lag enn.

Það voru Ítalir sem unnu sigur þetta árið með lagið Zitti en buoni í flutningi rokksveitarinnar Måneskin. Veðbankar höfðu spáð Ítölum sigri og höfðu þeir betur eftir æsispennandi atkvæðagreiðslu.

Eftir að atkvæði dómnefnda höfðu verið kunngjörð var lag Íslands í 5. sætinu með 198 stig en framlag Sviss var í efsta sætinu með 267 stig. Athygli vekur að ítalska lagið var í 4. sætinu eftir að dómnefndaratkvæðin höfðu verið kynnt og aðeins átta stigum á undan Daða og Gagnamagninu.

Þegar niðurstöður símakosningarinnar voru kynntar breyttist aftur á móti staðan. Ítalir fengu langflest stig og samtals 534 stig. Frakkar urðu í 2. sæti með 499 stig, Sviss í 3. sæti með 432 stig og Ísland í því fjórða. Þar á eftir komu svo Úkraína, Finnland, Malta, Litháen, Rússland og Grikkland.