Ísafjarðarbær ætlar að gefa þetta 350 fermetra einbýlishús - Sjáðu myndina

Mynd dagsins að þessu sinni sýnir 350 fermetra hús á Þingeyri sem Ísafjarðarbær er að gefa. Einu skilyrðin eru þau að viðkomandi geri húsið upp.

Húsið sem um ræðir er söguþekkt og hefur gengið undir nafninu Gramsverslun. Það var byggt árið 1890 og var aðalkauppunkturinn fyrir Dýrafjarðarsvæðið í marga áratugi. Hér er því bygging sem er full af sögu en vissulega í slæmu ástandi eins og segir á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.

Eftirfarandi viðgerðir og endurbætur eru nauðsynlegar til að koma húsinu í nothæft ástand:

-Fjarlægja undirstöður og gólfplötu fyrstu hæðar og steypa nýjar undirstöður.

-Gera við burðargrind og timburklæðningu útveggja, endurnýja bárujárn og frágangslista við þakbrúnir.

-Lagfæra burðarvirki innanhúss með því að lagfæra súlur og bita og setja einangrað timburgólf á fyrstu hæð.

-Lagfæra sperrur, lektur og þakklæðningu, endurnýja þakstál, áfellur, þakrennur og niðurföll.

-Endurnýja alla glugga og hurðir.

-Rétta húsið af.

Allar frekari upplýsingar má nálgast hér.