Ísabella Von, tólf ára stúlka sem lögð var í hrottalegt einelti af samnemendum sínum og reyndi að svipta sig lífi í kjölfarið, leitar nú að nýjum skóla. Hún segir einn koma til huga þar sem áhersla er lögð á íþróttastarf. Hún vonast til að hún komist inn eftir áramót.
Sædís Hrönn Samúelsdóttir, móðir Ísabellu, telur það hafa hjálpað að greina opinberlega frá ofbeldi sem dóttir hennar varð fyrir. Ísabella tekur undir það og segist ekki vera eins hrædd og hún var áður.
Fjöldi fólks og fyrirtækja hefur sýnt þeim stuðning og gefið þeim veglegar gjafir.
„Þetta vegur allavega vel og vandlega á móti þessu ljóta,“ segir Sædís og bætir við: „Það ljóta næstum því drukknar.“ Hún segir þær vera óendanlega þakklátar.
Aðspurð játar Sædís að það sé heldur engin lausn við að vera vond við gerendur Ísabellu. „Nei, þau eru bara börn líka, þau þurfa líka hjálp,“ segir hún.
Sædís og Ísabella Von voru í viðtali í Fréttavaktinni í kvöld, sem má sjá í heild sinni hér að neðan.