Ingvi Hrafn segir farir sínar ekki sléttar eftir flug­ferð með Icelandair: „Nei ég er ekki að djóka sagði freyjan“

Sjón­varps­maðurinn fyrr­verandi Ingvi Hrafn er allt annað en sáttur með Icelandair og í­hugar að fljúga aldrei aftur með.

Hann greinir frá þessu á Face­book en hann segist tengdur Icelandair fjöl­skyldu­böndum og hefur hingað til alltaf kosið flug­fé­lagið fram yfir önnur. Ingvi Hrafn er bú­settur á Flórída og flýgur því reglu­lega fram og til baka til Ís­lands. Er hann var með sjón­varps­þættina Hrafna­þing var hann oftar en ekki staddur í Flórida og sinnti fjar­vinnu frá Flórída.

„Hef alltaf verið mikill Loft­leiða/Icelandair maður enda tengdur fé­laginu fjöl­skyldu­böndum í meira en hálfa öld. Verð að segja eftir síðustu ferð vestur um haf, að ein­hverjir nýjir straumar eru á ferð, sem mér hugnast ekki alveg,“ skrifar Ingvi Hrafn.

Er hann er spurður út í þessi um­mæli segir hann: „Veit það ekki, brott­för og heim­koma á rampi, skammtað eitt glas af pepsi, nei ég er ekki að djóka sagði freyjan, bara ein­hvern veginn, ekki sami ramminn, 737, krömmí þröng á 8 klst flugi. Bara kannski átt­ræður, gamall þreyttur kall.“