„Ég sem kvenkyns frambjóðandi þarf að þola svo undarleg ummæli sem ég held að karlkyns frambjóðendur þurfa ekki að þola,“ segir Ingveldur Anna Sigurðardóttir laganemi sem býður sig fram í í 4. – 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Ingveldur birti færslu á Twitter í gærkvöldi sem vakið hefur talsverða athygli en þar birti hún dæmi um athugasemdir sem hún hefur fengið síðan hún ákvað að bjóða sig fram í byrjun aprílmánaðar. Birtir hún meðfylgjandi dæmi:
“Getur þú ekki eldað kartöflur?”
“Auðvitað kýs ég svona unga sæta stelpu”
“Ef ég væri yngri myndi ég reyna við þig”
Ingveldur segir að þetta sé „sturlað pirrandi“ og geta væntanlega allir tekið undir það. Í athugasemdum undir færslunni segir Ingveldur að hún hafi stundum sagt á móti að það sé eitthvað á milli eyrnanna á henni og hún vilji frekar fá atkvæði út á það.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fer fram þann 29. maí næstkomandi en í framboði eru til dæmis Ásmundur Friðriksson þingmaður, Vilhjálmur Árnason þingmaður, Eva Björk Harðardóttir oddviti Skaftárhreps og Guðrún Hafsteinsdóttir markaðsstjóri Kjörís.
Ég sem kvenkyns frambjóðandi þarf að þola svo undarleg ummæli sem ég held að karlkyns frambjóðendur þurfa ekki að þola.
— Ingveldur Anna (@AnnaIngveldur) May 16, 2021
“Getur þú ekki eldað kartöflur?”
“Auðvitað kýs ég svona unga sæta stelpu”
“Ef ég væri yngri myndi ég reyna við þig”
Alveg hreint sturlað pirrandi