„Mér er gjörsamlega óglatt. Allt tal ráðherraliðsins um að líf og heilsa landsmanna sé sett í fyrsta sæti er hjómið eitt,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.
Inga Sæland gerði áhyggjur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna í morgun að umtalsefni, en á fundinum lýsti Þórólfur yfir áhyggjum sínum af smiti sem greindist utan sóttkvíar í gær. Sagði Þórólfur að við þyrftum að halda vel á spöðunum til að forðast aðra bylgju faraldursins.
Sjá einnig: Þórólfur: Ástæða til að hafa áhyggjur vegna smits í gær
Eins og greint hefur verið frá tóku nýjar sóttvarnarreglur gildi í dag og eru til dæmis gild bólusetningarvottorð og vottorð um fyrri COVID-19 sýkingu frá ferðamönnum utan Schengen tekin gild. Þann 1. maí næstkomandi er stefnt að því að taka upp litakóðunarkerfið á landamærunum sem margir hafa áhyggjur af.
Inga Sæland er harður talsmaður harðra sóttvarnaraðgerða og vill hún helst loka landinu alveg til að forðast ný smit. Hún ítrekar þessa skoðun sína í pistli sínum á Facebook.
„Skyldi Íslandsstofa markaðssetja og selja landið okkar erlendum ferðamönnum um leið og þeir bendi þeim á að allir geti verslað sér falsað bólusetningarvottorð á netinu fyrir 25 dollara stykkið. Mér er gjörsamlega óglatt. Allt tal ráðherraliðsins um að líf og heilsa landsmanna sé sett í fyrsta sæti er hjómið eitt. Aðgerðir þeirra nú tala sínu máli. Það þarf engan sérfræðing til að sjá hverjir raunverulega stýra þessu landi.“
Inga Sæland segir að slagorð Flokks fólksins sé fólkið fyrst en svo allt hitt.
„Við fordæmum algjörlega þennan innflutning á fjórðu bylgju faraldursins til landsins.
Aðgerðirnar eru algjörlega óafsakanlegar um leið og að vera óskiljanlegar.
Ekkert á borði stjórnvalda sem sýnir ábatann af því að taka þessa áhættu með líf okkar og heilsu.“
Inga er vægast sagt svartsýn á framhaldið og óttast mjög fjórðu bylgju faraldursins.
„Hvað með sumarið framundan þegar blússandi Coved kollríður samfélaginu, hver á þá að ferðast innanlands? Ég bara spyr? Svarið liggur að vísu í augum uppi. ENGINN.
Við munum svipt öllu frelsi og þurfa að sitja heima sem aldrei fyrr með afbrigði af veirunni sem tekur okkur mun öflugar en við þekkjum til þessa.
Við höfum unnið saman og viljað komast út úr þessum brimskafli saman, en nú sendir ríkisstjórnin okkur fingurinn og gerir ekkert með það sem við höfum lagt á okkur til þessa. Ég á ekki nógu stór orð til að lýsa andúð minni á þessum aðgerðum, eða réttara sagt ég á þau til en læt þau vera engu að síður.“