Inga Sæland, formaður Flokk fólksins, tók til máls undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag og ræddi þar heilbrigðiskerfið á Íslandi.
„Það er tvennt sem mig langar að nefna og það er þessi mismunun gagnvart börnunum okkar sem eru það ólánsöm að vera staðsett hjá fátækum foreldrum,“ sagði Inga
„Þau eiga foreldra sem eiga ekki efni á nauðsynlegum aðgerðum fyrir þau í munni. Tannréttingar til dæmis, svo ég tali hér af eigin reynslu, þá var égr hér með ömmustrák í fyrsta tímanum í morgun, þar sem verið að líma járn í munninn á honum þar sem hann er með þetta allt skakkt og snúið eins og gerist og gengur,“ sagði Inga.
„Hann mun ekki alast upp sem fullorðinn maður og verða skakkur og snúinn. Hann mun fá fínar fallegar tennur, kostnaður verður á bilinu 1,5 til 2 milljónir króna og sjúkratryggingar greiða 150 þúsund krónur. Virðulegi forseti. Hverslags samfélag er það sem mismunar fátæku fólki þannig að þau hafa ekki efni á því að leita læknisaðstoðar fyrir börnin sín? Það er vægast sagt ömurlegt samfélag svo ekki sé meira sagt,“ sagði Inga.
Inga ræddi síðan stöðuna á Reykjalundi það vera einn frábærasta stað sem hún hefur komið á. „Þverfaglegt teymi sem heldur utan um okkur og hjálpar okkur og endurhæfir til að koma okkur út í samfélagið. Og hvað eru sjúkratryggingar að gera núna? Segja upp samningi við Reykjalund í sambandi við Reykjalund,“ sagði Inga
„Og hverjir fá þessa starfsendurhæfingu, fimmtíu einstaklingar sem er úthlutað af VIRK. Fimmtíu einstaklingar sem eru óhreinu börnin hennar Evu sem enginn vill skipta sér af og enginn kærir sig um og þar af leiðandi er ekki þess virði að Sjúkratryggingar Íslands haldi þessum samningi áfram. Alveg sama þó í lok dags eru þessir einstaklingar færir um að vinna 30 prósent, 40 prósent, 50 prósent starf og fái að taka þátt í samfélaginu okkur. Virðulegi forseti ég hef skömm af svona heilbrigðiskerfi,“ sagði Inga að lokum.