Nú um stundir er lítið um áætlunarflug milli landa og því tilvalið að ferðast í huganum, en í þætti Björns Jóns Bragasonar Sögu & samfélagi á Hringbraut í kvöld mun Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur segja frá nokkrum hulduþjóðum Evrópu.
Þorleifur hefur rannsakað þessar þjóðir og heimsótt þær margar. Þeirra á meðal eru íbúar Transnjestríu sem er innan landamæra Moldóvu að þjóðarrétti en samt sem áður ríki með sína eigin stjórn og gjaldmiðil. Þar hefur fátt hefur breyst frá dögum Sovétríkjanna og enn er hamar og sigð í fána Transnjestríu.
Þaðan verður haldið yfir til Ingermanlands eða Ingríu en Ingrar eru ein finnsk-úgrískra þjóða sem búa fyrir botni Finnskaflóa. Ingrar máttu sæta grimmilegum ofsóknum Stalíns og þeim var meinað að halda uppi menningu sinni. Stór hluti þjóðarinnar var fluttur í þrælkunarbúðir og fæstir áttu afturkvæmt.
Kasjúbar er önnur hulduþjóð sem býr innan landamæra Póllands og talar sitt eigið slavneska mál. Þorleifur gerir þeim skil í þættinum en líka Frísum. Um þá má fræðast í Germaníu rómverska sagnaritarans Tacitusar. Frísar voru miklir sæfarendur og frá þeim er komið orðið kuggur yfir sérstakt lag á skipum. Þeir voru einnig fræknir stríðsmenn og krossfestu ósjaldan skattheimtumenn Rómverja. Frá Fríslandi segir í Egils sögu og fleiri íslenskum fornritum.
Á okkar dögum stendur menning Frísa með miklum blóma í Norður-Hollandi. Þeir eru um 600 þúsund talsins og tala sitt sérstaka tungumál. Þeim hefur þó farið hratt fækkandi sem tala frísnesku innan landamæra Þýskalands og Danmerkur.
Síðasta hulduþjóðin sem Þorleifur segir frá í þættinum eru Bretónar á Bretagne-skaga í Frakklandi. Þeirra tunga hefur hnignað mjög fyrir franskri ágengni.
Fylgist með Sögu & samfélagi á Hringbraut í kvöld kl. 21.30.