Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður RÚV, og tökumaður hans Ingvar Haukur Guðmundsson eru staddir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, þessa stundina til að fjalla um innrás Rússa í landið.
Í frétt sem birtist á vef RÚV í morgun segir að Ingólfur og Ingvar freisti þess nú að komast frá Kænugarði en ferðin sækist hægt. Þeir voru í bifreið á hraðbraut sem liggur út úr borginni en gríðarleg umferð gerir það að verkum að umferðin hreyfist lítið sem ekkert.
„Það er samfelldur sprengjugnýr. Það eru hörð átök ekki langt frá okkur,“ sagði Ingólfur Bjarni
Rússar eru komnir inn í Kænugarð og hafa íbúar borgarinnar verið hvattir til að halda sig heima.