Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður RÚV, átti erfitt með sig þegar hann lýsti stöðu mála í Úkraínu í beinni útsendingu í aukafréttatíma RÚV nú í hádeginu.
Ingólfur Bjarni er staddur í Kænugarði en eins og flestir vita gerðu Rússar innrás í landið í morgun og hafa sprengjur fallið víða. Viðbúið er að miklar hörmungar gætu verið í uppsiglingu ef fer sem horfir.
Ingólfur Bjarni lýsti ástandinu í borginni og átti erfitt með sig þegar hann lýsti því sem fyrir augu bar. Hann tók viðtöl við nokkra Úkraínumenn og lýsti ein kona því hvernig þörf væri á fólk sýndi hugrekki.
Ingólfur tók undir það í viðtali við Boga Ágústsson og lýsti því að skömmu eftir að viðtölin voru tekin hafi hann og tökumaður hans farið upp á hótel til að klippa viðtölin. Hótelið hafi verið rýmt í miklu ofboði og fólki stefnt í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar, sem er í raun sprengjubyrgi hennar núna.
„Þar sá maður einhvern veginn hvernig fólk var eins og blöðrur sem loftið var að leka úr. Eldri kona horfði í augun á mér og rétti mér sigurmerkið og það var eiginlega bara átakanlegt. Ung kona sem sat hinum megin sat og skrollaði í gegnum símann og tárin fóru að trylla. Það er erfitt að finna ekki til með fólki sem finnst eins og það hafi verið yfirgefið,“ sagði Ingólfur Bjarni.
Ingólfur Bjarni tárast í beinni from DV Sjónvarp on Vimeo.