Góður rómur var gerður að tónleikum Ingólfs Þórarinssonar, Ingós Veðurguðs, á íslenska veitingastaðnum Bambú bar & bistro í gærkvöldi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ingó kemur fram opinberlega eftir að ásakanir gegn honum birtust á samfélagsmiðlum fyrr í sumar. Ingólfur átti sem kunnugt er að sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum í ár en ekkert varð af því og þá missti hann einnig önnur gigg.
Sýnt var frá tónleikum Ingólfs á Facebook-síðu Bambú bar & bistro í gærkvöldi og virðist stemningin hafa verið býsna góð. Það voru að minnsta kosti margir mættir á svæðið til að berja Ingólf augum og var honum vel fagnað af gestum veitingastaðarins sem voru í meirihluta Íslendingar.
Undir lok myndbandsins sagðist Ingólfur þurfa að bregða sér á salernið, enda tónlistarmenn á verkalýðstöxtum sem ættu rétt á sínum matartíma. Þá var hrópað úr salnum: „Þú kemur aftur“ og svaraði Ingólfur að bragði: „Jú, ég kem alltaf aftur.“
Hér að neðan má sjá brot af tónleikunum: