Ingó Veðurguð opnaði sig í héraðsdómi: „Nei, það er ekki til í mér“

Aðalmeðferð í máli Ingólfs Þórarinssonar, Ingó Veðurguðs, gegn Sindra Þór Sigríðarsyni fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ingó kærði Sindra í fyrrasumar vegna ummæla sem sá síðarnefndi lét falla á samfélagsmiðlum. Sagði Sindri meðal annars að Ingó væri „þekktur fyrir að ríða börnum.“

Í fyrrasumar var talsvert fjallað um meint brot Ingólfs og fóru sumir hamförum á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Alls stefndi Ingólfur fimm einstaklingum og var Sindri einn þeirra.

Fyrir dómi í dag sagðist Ingólfur aldrei hafa sængað hjá stúlkum á grunnskólaaldri né börnum undir 18 ára. Þá sagðist hann ekki hafa heyrt sögusagnir um slíkt.Fréttablaðið greinir frá þessu en fyrir dómi í morgun kom fram að Ingólfur ætti von á barni ásamt kærustu sinni.

Ingólfur sagði fyrir dómi að honum hafi liðið hræðilega við að heyra að hann væri „þekktur fyrir að ríða börnum“ og þá sagðist hann telja ummælin mjög gildishlaðin.

Hann hafnaði því alfarið að hafa framið gróft lögbrot eins og nauðgun. „Nei það er ekki til í mér,“ sagði hann.

Hann sagði málið hafa haft gríðarleg áhrif á hann. Hann hafi misst atvinnu og fyrirtæki og fólk hafi hætt að þora að bóka hann.

Ingó segist hafa fengið ákveðna aðstoð til að halda áfram með lífið og það væri mikilvægt. Þá sagðist Ingó hafa fengið stuðning frá fjölskyldu og vinum og að hann reyni að vera jákvæður. Hann vilji þó reyna að fá sínu fram með kærunni, að það megi ekki segja hvað sem er á netinu.