Ingó Veður­guð gefur út nýtt lag eftir langa fjar­veru: „Þetta lag var samið áður en ég fékk bestu fréttir lífs míns“

Ingólfur Þórarins­son, betur þekktur sem Ingó Veður­guð, hefur gefið út nýtt lag. Hann hefur ekki gefið út nýtt lag í nokkurn tíma en lítið hefur farið fyrir honum undan­farið tvö ár eftir að fjöldi nafn­lausra frá­sagna birtust þar sem Ingólfur var sakaður um kyn­ferðis­of­beldi.

Ingó er nú kominn úr pásunni og hefur gefið út lagið Gítarinn.

Í færslu á Face­book segir Ingó að hann elski fátt mátt meira en að búa til tón­list. Síðustu tvö ár hafa verið honum lær­dóms­rík og hafi margir haldið að hann væri hrein­lega hættur í tón­list og hafi sett gítarinn upp á hillu.

„Ég hef haft tíma til að spá í tón­list og mig langaði að gefa frá mér lag sem ég er á­kaf­lega stoltur af. Ég hef alltaf komið til dyranna eins og ég er klæddur hvað varðar texta í lögunum mínum og í þessu er engin breyting.

Þetta lag var samið áður en ég fékk bestu fréttir lífs míns að ég væri að verða faðir sem hefur einnig hvatt man til að ein­blína á allt það sem er já­kvætt,“ skrifar Ingó.

Texti lagsins fjallar um mann sem allir hafi snúið bakinu við og hefur ekkert nema gítarinn. „Hann situr einn í dimmu húsi, enginn honum hjá. Gítarinn er það eina sem hann á.“

Endur­koma Ingó á stóra sviðið er svo væntan­leg en hann stefnir á tón­leika þann 10. mars undir yfir­skriftinni „Loksins gigg“