Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, skrifaði færslu í dag á Facebook þar sem hann svarar fyrir frétt DV í dag þar sem nafnlaus kona segist hafa kært Ingó fyrir líkamsárás í fyrra. Hann birtir samskipti sín við lögregluna máli sínu til stuðnings.
„Í aðalmeðferð í meiðyrðamáli Ingós gegn Sindra Þór Sigríðarsyni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, síðastliðinn mánudag, sló það viðstadda blaðamenn að ekkert vitni var leitt fram sem hafði haft bein kynni af Ingó. Þá kom einnig fram að Sindri, sem sakaði Ingó um að „ríða börnum“, vitnaði ekki um nein bein tengsl við meinta þolendur Ingós,“ segir í frétt DV.
Staðhæft hefur verið að Ingó hafi hvorki verið kærður, ákærður né sakfelldur fyrir brot gegn konum. En DV rifjaði síðan upp að ónafngreinda konu sem sagði reynslusögu númer 3 sem aðgerðarhópnum Öfgar birti greinir hún frá því að hún hafi kært Ingó fyrir líkamsárás sumarið 2021 sem átti sér stað 2017 en lögreglan sagði málið fyrnt.
„Ég fer að verða ansi þreklaus í þessu öllu og enn og aftur hef ég enga leið til að verja mig þar sem allt er nafnlaust. Að eg fari svo að kýla konu og hrækja framan í er í besta falli galið en þetta synir hversu langt ákveðnir hópar eru til í að ganga.
Hér kemur skýrt fram að ég hef ALDREI verið ákærður fyrir ofbeldisbrot eða kynferðisbrot enda aldrei gert slíkt,“ skrifar Ingó á Facebook.
„Húsbrotið eru mistök þegar ég fór í sund eftir lokun í Vestmannaeyjum. Eg veit ekki hvers vegna DV birtir svona en væntanlega því þar var ég nafngreindur fyrst undir mörgum lygum og vægast sagt ógeðfelldum sögum. Ég mun berjast þar til ég dey að hafa aldrei nauðgað, riðið börnum eða lamið konur. Það skal ég sverja upp á konuna mína, Pinna og Gumma bróður þau sem ég elska mest,“ heldur Ingó áfram.
„Eg hvet svo fólk til að fara að blanda sér aðeins í þessi màl, lofa því að annars geta allir lent í svona og ef þú beygir þig ekki er logið. Við hvað eru allir annars hræddir? Þangað til venjulegt fólk stoppar þessa bilun tekur þetta yfir allt samfélagið og þetta er orðið vopn til að drepa hvern sem er. Eg er saklaus og mun berjast þó ég standi einn að berjast. Þetta fólk svífst einskis.“
„Mig langar mest af öllu að reyna að halda áfram og fá frið með konunni minni og verðandi barni en ég verð að berjast fyrir því að fá eitthvað réttlæti við því sem hefur verið sagt,“ skrifar Ingó að lokum og birtir mynd af samskiptum sínum við lögregluna.