Ingó með hjart­næm skila­boð eftir að síðustu miðarnir seldust: „Allur fókus á það og ekkert annað“

Upp­selt er á alla ferna tón­leikana sem Ingólfur Þórarins­son, betur þekktur sem Ingó veður­guð, ætlar að halda um næstu helgi. Ingólfur til­kynnti þetta á Face­book-síðu sinni í gær og er þakk­látur fyrir á­hugann sem fólk hefur sýnt tón­leikunum.

Tvennir tón­leikar verða haldnir á föstu­dags­kvöld, klukkan 19:30 og 22:00, og svo tvennir á laugar­dags­kvöld á sama tíma.

„Til að bregðast við fjölda fyrir­spurna verður tón­leikunum á laugar­dags­kvöldið kl 19.30 streymt í beinni út­sendingu gegnum sjón­varp Símans og Livey E­vents,“ segir Ingó í færslu sinni og bætir við:

„Ég þakka öllum inni­lega fyrir og get ekki beðið eftir þessari helgi […] Takk Fyrir mig.“

Ingólfur hefur ekki komið fram opin­ber­lega hér á landi í um tvö ár eftir að á­sakanir um kyn­ferðis­of­beldi og á­reitni komu fram á hendur honum. Hann hefur sjálfur vísað þessum á­sökunum á bug.

Í sam­tali við Vísi í síðustu viku, þar sem greint var frá því að miða­sala á tón­leikana hefði gengið vonum framar, sagðist Ingó fullur til­hlökkunar og hafa góða til­finningu fyrir tón­leikunum.

„Fernir tón­leikar, flott hljóm­sveit, flottur salur. Þetta verður gleði og skemmtun og allur fókus á það og ekkert annað,“ sagði hann.