Ingó Veðurguð, ætlar í hart. Hann mun kæra 32 nafnlausar sögur sem birtust á Tik Tok svæði Öfga til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögmaður Ingós, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson staðfestir þetta í samtali við Ríkisútvarpið.
Fimm manns munu svo fá kröfubréf vegna ummæla sem þeir létu falla á netinu. Um er að ræða blaðamenn, samfélagsmiðlastjörnu og fólk sem sakaði Ingólf um refsiverða háttsemi í athugasemdum fjölmiðla.
Einstaklingarnir hafi látið ásakanir um refsiverða háttsemi „og þar með ærumeiðandi aðdróttanir falla um umbjóðanda minn, annaðhvort á samfélagsmiðlum eða í fréttum sem birtust í fjölmiðlum.“ Segir Vilhjálmur að þeir verði krafnir um afsökunarbeiðni og miskabætur.
Vilhjálmur segir að kæran beinist ekki að forsvarsmönnum Öfga heldur þeim sem standi að nafnlausu söguna. Lögreglan hafi sínar leiðir til að finna út hverjir þar eru að baki. „Hvað varðar kæruna til lögreglunnar er þess einungis krafist að viðkomandi einstaklingar verði látnir sæta refsingu fyrir ærumeiðingar.“
Vilhjálmur segir að í sögunum 32 hafi verið birtar ásakanir á hendur skjólstæðings hans um meinta refsiverða háttsemi sem ekki eigi við rök að styðjast.
Hann segir málið ekki snúast um það hvort #metoo bylgjan standist lög. Algjört grundvallaratriði sé að fólk gæti að orðum sínum og brúki lögvarið tjáningarfrelsi sitt þannig að það vegi ekki að friðhelgi einkalífs og æruvernd annarra.
„Og það er það auðvitað þannig og það er hluti af lýðræðinu og réttarríkinu að þeir sem telja á sér brotið hafa ákveðnar leiðir til að ná fram rétti sínum. Ég tel að dómstóll götunnar, sem þetta er, sé aðför að þeim sáttmála.“