Ingó er ekki fluttur til mömmu og pabba

Ingólfur Þórarins­son, betur þekktur sem Ingó veður­guð, þver­tekur fyrir það að vera fluttur heim til for­eldra sinna. Smart­landið á mbl.is greindi frá því í að Ingó væri fluttur til for­eldra sinna á Sel­fossi eftir að hafa sett rað­húsið sitt á Álfta­nesi á sölu í októ­ber­mánuði.

Ingó hafnar þessum frétta­flutningi Smart­landsins og segir góðar og gildar á­stæður fyrir því að lög­heimili hans sé nú í for­eldra­húsum.

„Vegna fréttar Smart­land á MBL vil ég koma eftir­farandi á fram­færi. Ég er ein­göngu með lög­heimilið mitt skráð hjá for­eldrum mínum tíma­bundið svo póstur og annað skili sér til mín þar sem ég hef ekki enn­þá fundið mitt fram­tíðar­heimili en það er í fullri vinnslu. Ég er bú­settur í vina­húsi í bænum þó Sel­foss sé alltaf bærinn,“ segir Ingó sem klykkir út með léttu skoti á Smart­landið:

„Er svo á leið í Nettó á eftir að kaupa mér flat­kökur ef það vantar smelli.“