Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri Rásar 2 segir Ingó Veðurguð ekki á neinum bannlista hjá útvarpsstöðinni, þrátt fyrir að útvarpsmaður hafi komið sér hjá því um helgina að verða við beiðnum um að spila lög með tónlistarmanninum.
Þetta segir Baldvin í samtali við Vísi. Útvarpskonan Heiða, sem sér um Næturvakt Rásar 2, spilaði ekki lög með tónlistarmanninum, þrátt fyrir að hafa borist beiðnir um það. DV greindi frádyggum hlustendum sem vildu fá lög með Veðurguðinum óháð ásökunum á hendur hans.
„Heyrðu elskan, ég ætla að senda hérna, skal ég þér að segja, fá að heyra Undir regnbogann með honum Ingólfi Veðurguð,“ sagði konan.
„Það hefur engin skipun borist að ofan um það,“ segir Baldvin Þór um það hvort Veðurguðinn sé á sérstökum bannlista. Ljóst sé hinsvegar að útvarpsfólk hafi mismunandi skoðanir á því hvort hann sé spilaður eða ekki.