Ingó á­frýjar til Lands­réttar: „Dómurinn sem féll var ber­­sýni­­lega rangur“

Tón­listar­maðurinn Ingólfur Þórarins­­son, betur þekktur sem Ingó Veður­guð ætlar að á­frýja dómi Héraðs­­dómi Reykja­víkur sem féll þann 30. maí í meið­yrða­­máli hans gegn Sindra Þór Sig­ríðar­­syni Hilmars­­son.

„Dómurinn sem féll var ber­­sýni­­lega rangur. Við tókum stöðuna og á­frýjun varð niður­­­staðan,“ segir Auður Björg Stefáns­dóttir, lög­­maður Ingólfs, í sam­tali við Frétta­blaðið.

Sindri Þór Sig­ríðar­son var sýknaður af öllum kröfum Ingólfs Þórarins­sonar, eða Ingós veður­guðs, í meið­yrða­máli sem hann höfðaði gegn honum vegna um­mæla á Inter­netinu.

Meðal um­mæla sem Sindri Þór lét falla á sam­fé­lags­miðlum á þessum tíma var: „Maður sem er svo þekktur fyrir að ríða börnum.“

Í skýrslu­töku við aðal­með­ferð málsins í byrjun maí sagðist Ingó aldrei hafa sængað hjá stúlkum á grunn­skóla­aldri né börnum undir 18 ára. Þá sagðist hann aldrei hafa heyrt sögu­sagnir um neitt slíkt.

Sindri Þór var spurður hvort hann hefði getað verið hóf­stilltari í orða­vali í um­mælum sínum um Ingó en hann sagðist ekki vera týpan til að tala undir rós. „Ég sá ekki á­stæðu til þess. Ég var að lýsa því sem ég hafði orðið á­skynja í um­ræðunni.“

At­hygli vakti við aðal­með­ferð málsins að ekkert fimm vitna sem verjandi Sindra Þórs kallaði til lýstu per­sónu­legri reynslu af Ingó fyrir héraðs­dómi.