Á Ingileif Bryndís metið? Stjórnarformaður í 51 ár! (Sjá myndband)

Ingileif Bryndis Hallgrímsdótir var stjórnarformaður Nóa-Síríusar í 51 ár. Sagt og staðið. Hún tók við stjórnarformennsku í fyrirtækinu árið 1954 eftir andlát föður síns og gegndi því til ársins 2005 þegar dóttir hennar, Áslaug Gunnarsdóttir, tók við formennskunni.

Þeir Jón G. og Finnur Geirsson, forstjóri Nóa-Sírusar, ræða meðal annars um Ingileif í þættinum Viðskipti með Jóni G. Spurningin er auðvitað sú hvort samfelld 51 árs stjórnarformennska hennar í Nóa sé met hér á landi.

Ingileif útskrifaðist stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1938 og var það töluverður viðburður því að tala kvenstúdenta hafði verið átta árið 1915 og fjölmennari urðu konurnar ekki í neinum árgangi fyrr en árið 1938 að kvenstúdentar voru 19 talsins. „Ekki hafði ég kjark til að fara ein stúlkna í stærðfræðideild," rifjar hún upp í skemmtilegu viðtali við Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur í Frjálsri verslun árið 2000 þegar Ingileif hafði verið í stjórn Nóa-Síríusar í 46 ár.

Sjá brot úr viðtalinu við Finn um Ingileif frænku hans. (Systir Geirs föður hans.)