Ingi­björg vill að Ís­lendingar huga að þessu í vinnunni: „Eyðum flest stórum hluta af okkar vöku­tíma í vinnu og því upp­lagt að nýta þann vett­vang“

Ingi­björg Lofts­dóttir, sér­fræðingur hjá VIRK starf­sendur­hæfingar­sjóði, segir að heilsu­efling er eitt­hvað sem við viljum flest stunda en það getur reynst mörgum erfitt að halda sig við efnið auk þess sem við leyfum okkur oft að taka hliðar­spor í sumar­leyfinu.

„Þá er gott að vita til þess að margir vinnu­staðir styðja við starfs­fólk í sinni heilsu­eflingu og taka ein­mitt oft upp þráðinn á haustin.

Við eyðum flest stórum hluta af okkar vöku­tíma í vinnu og því upp­lagt að nýta þann vett­vang. Það má í raun hugsa stuðning við heilsu okkar í vinnunni út frá tveimur víddum; annars vegar að vinnu­staðir tryggi að grunn­þáttum sé sinnt til að tryggja að við höldum heilsunni í starfi en hins vegar að unnið sé að því að efla heilsu starfs­fólks enn frekar,“ skrifar Ingi­björg í Frétta­blaðinu í dag.

„Vinnu­um­hverfi þarf al­mennt að vera til þess fallið að við hljótum ekki skaða af hvort sem það er vegna slysa eða lang­varandi á­lags. Finna má fjölda ráða hvað þetta varðar á for­varnar­síðu VIRK, vel­virk.is, og eins á síðu Vinnu­eftir­litsins, vinnu­eftir­lit.is, en þar eru m.a. upp­lýsingar um lög­bundin á­hættu­möt vinnu­staða. Þegar við hugsum um skaða vegna vinnu­um­hverfis er mikil­vægt að horfa ekki bara til líkam­legra á­hættu­þátta heldur þarf líka að tryggja að menningin á vinnu­staðnum sé til þess fallin að fyrir­byggja van­líðan og ó­hóf­lega streitu.“

„Varðandi streitu­þáttinn getur verið gott að kynna sér efni og verk­færi tengd „Streitu­stiganum“ á Vel­virk-síðunni. Streitu­stiginn er verk­færi sem auð­veldar um­ræðu um streitu á mynd­rænan hátt. Vel­virk-síðan býður einnig upp á ýmis ráð þegar kemur að sam­skiptum á vinnu­stað. Er eitt­hvað sem betur mætti fara í sam­skiptum starfs­fólksins? Er eitt­hvað sem þarf að huga að í stjórnunar­háttunum eða ríkir traust og sál­fé­lags­legt öryggi á vinnu­staðnum?“ skrifar Ingi­björg.

Ingi­björg segir að þegar kemur að heilsu­eflingu á vinnu­stað er í raun um ó­endan­lega mögu­leika að ræða.

„Vinnu­staðir geta t.d. haft að­stöðu sem styður við starfs­fólk sem gengur eða hjólar til vinnu, boðið upp á hollan matar­kost/milli­mál, unnið mark­visst að góðum sam­skiptum og tryggt að stjórn­endur séu með­vitaðir um að vera góð fyrir­mynd og á­stunda upp­byggi­lega stjórnunar­hætti. Ekki má svo gleyma að huga að um­hverfinu og því að halda vinnu­staðnum reyk- og vímu­efna­lausum.“

„Fjöl­margir aðilar bjóða stuðning við fyrir­tæki sem vilja vinna að heilsu­eflingu en auk þess stendur öllum vinnu­stöðum á landinu til boða frír að­gangur að verk­færinu „Heilsu­eflandi vinnu­staður“ sem má finna á heilsu­eflandi.is. Byrjum haustið vel og hugum að heilsunni í vinnunni. Það er hagur okkar allra og sam­fé­lagsins í heild að okkur líði sem best í vinnunni því þannig getum við hlúð að vel­líðan og starfs­orku og ekki síður tryggt fram­leiðni.“

„Á vel­virk.is má finna mý­mörg ráð til að okkur geti liðið sem best í vinnunni og náð að efla heilsuna enn frekar,“ skrifar Ingi­björg að lokum.