Ingi­björg telur illa vegið að Eddu vegna um­fjöllunar um hlað­varps­greiðslur: „Hluti af því á­reiti sem hún þarf stöðugt að þola“

Ingi­björg Dögg Kjartans­dóttir, rit­stjóri Heimildarinnar og sam­starfs­kona Eddu Falak, er allt annað en sátt með um­fjöllun DV.is um Eddu Falak og hlað­varps­þáttinn Eigin konur í gær.

DV.is greindi frá því að á­skrif­endur hlað­varps­þáttanna hafa greitt Eddu um tvær milljónir króna án þess að fá neitt nýtt efni, þegar þeim er lofað fjórum þáttum í mánuði.

Rit­stjóranum þykir illa vegið að Eddu með þessari um­fjöllun og segir Eddu hafa verið í fríi í janúar.

„Sá frétt á DV í dag þar sem ýjað er að því að Edda Falak sé að svíkjast undan vegna þess að hún tók sér frí í janúar. Sem síðan var tekin upp af fleiri miðlum. Þetta er hluti af því á­reiti sem hún þarf stöðugt að þola, þar sem fjöl­miðlar leika sér að gera hana að við­fangs­efni, þegar hún má ekki fara í frí eins og annað fólk án þess að það séu birtar um það nei­kvæðar fréttir í fjöl­miðlum,“ skrifaði Ingi­björg á Face­book í gær.

Hún segir fæsta gera sér grein fyrir upp­lýsinga­öflun og úr­vinnslu gagna sem liggur á bak hverjum þætti hjá Eddu og segir hana stöðugt vera vinna að því að finna frá­sögnum þolanda réttan far­veg.

Edda hefur þurft að þola nei­kvæða um­ræðu um sig á opin­berum vett­vangi fyrir vinnu sínu, sem í sumum til­fellum er meiðandi og í verstu til­fellum ógnandi.

Hægt er að lesa pistill Ingi­bjargar í heild sinni hér að neðan.