„Maður fyllist depurð og svolitlum doða. Þetta er ofboðslega sorglegt ástand en auðvitað er þetta ástand sem á sér stað alls staðar í heiminum,“ segir Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Hóteli Sögu, í samtali við RÚV.
Í frétt RÚV kemur fram að aðeins tveir gestir séu nú á hótelinu en þar eru samtals 235 herbergi.
Eins og alþjóð veit ríkir mikil óvissa í ferðaþjónustunni vegna Covid-19 faraldursins. Algjört frost ríkir í komum ferðamanna til landsins og hafa hótel og gistiheimili landsins fundið fyrir því.
Í samtali við RÚV segir Ingibjörg að starfsmenn í sautján stöðugildum séu nú í vinnu á hótelinu en stöðugildin eru um hundrað í eðlilegu ástandi. Hún kveðst eiga von á því að innanlandsmarkaðurinn taki við sér í sumar en hún hefur efasemdir um að það dugi til.
Þá segist hún eiga von á því að ríkisstjórnin kynni frekari aðgerðir á næstunni. Nefnir hún sem dæmi að ferðaþjónustufyrirtækjum verði með einhverjum hætti gert kleift að segja upp fólki án þess að greiða uppsagnarfrest.
Nánar er fjallað um málið á vef RÚV.