Ingibjörg Sólrún varar fólk við nöfnu sína á netinu: „Nú sé ég að ,,kona” þessi birti grein til stuðnings inn­rásarinnar í Úkraínu“

„Ég á­kvað fyrir nokkru síðan að loka síðunni minni á Facebook fyrir öðrum en vinum eftir að kona nokkur hafði gert sig þar heima­komna og notaði hana til að dreifa á­róðri til stuðnings inn­rás Rússa í Úkraínu,“ skrifar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum utanríkisráðherra Íslands á Facebook.

„Eftir nokkra skoðun komst ég að þeirri niður­stöðu að konan væri lík­lega ekki til í raunheimum heldur væri hún s.k net-tröll gert út af ó­prúttnum aðilum til að dreifa á­róðri fyrir aftur­halds­söm öfl. Nú sé ég að ,,kona” þessi birti grein í Mbl í gær til stuðnings inn­rásinni og ég vil nota tæki­færið til að vara fólk við henni en hún skrifar undir nafninu Ingi­björg Gísla­dóttir!“ bætir hún við.

Alnafna hennar Ingibjörg Sólrúnar, Ingibjörg Gísladóttir hefur verið iðinn við að skrifa áróður gegn Úkraínumönnum og styðja við Rússa í greinum í Morgunblaðinu síðustu daga. Nú síðast í gær.