Ingibjörg Sólrún trúði ekki eigin augum þegar hún fékk bílinn úr viðgerð

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, fékk heldur betur góða þjónustu á dögunum þegar hún fór með bílinn sinn í viðgerð.

Ingibjörg segir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni og hrósar verkstæðinu sem tók við bílnum hennar.

„Hrós dagsins! Súkkan mín lenti í árekstri og klesstist aðeins að aftan. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi en ég má hins vegar til með að hrósa verkstæðinu – Bílaréttingar Sævars – sem gerði við hana,“ segir Ingibjörg og heldur áfram:

„Ekki aðeins gerðu þeir fljótt og vel við bílinn heldur fengum við hann tandurhreinan og stífbónaðan bæði að innan sem utan þegar við sóttum hann. Hann var ekki þannig þegar þeir fengu hann.“