Ingi­björg segir eld­gosið úti­loka flug­völl í Hvassa­hrauni: „Þurfum að hætta þessari ó­vissu um Reykja­víkur­flug­völl og þrengja ekki meir að vellinum“

Ingi­björg Isak­sen, þing­flokks­for­maður Fram­sóknar, hefur fengið sig full­sadda af öllu tali um að færa Reykja­víkur­flug­völlur og segir að það eigi frekar að bæta inn­viði flug­vallarins.

„Reykja­nes­skagi hefur enn á ný bært á sér. Jarð­vísinda­menn halda því fram að eld­gosið í Mera­dölum og gosið í Geldingar­dölum gætu verið upp­hafið að löngu eld­gosa­tíma­bili á Reykja­nes­skaga. Ekki er úti­lokað að þetta gos­tíma­bil gæti virkjað eld­stöðvar nær Reykja­vík þótt litlar líkur séu þó á því. Við vitum ekki hvað fram­tíðin ber í skauti sér, en með vit­neskju um mögu­lega ógn af hraun­rennsli næstu ár er eðli­legt að við hugum að því hvaða upp­byggingu við viljum fjár­festa í á svæðinu,“ skrifar Ingi­björg í grein á Vísi.

„Síðustu ár hefur mikið verið rætt um upp­byggingu á nýjum flug­velli í Hvassa­hrauni. Undan­farna daga hefur greini­lega komið fram í um­ræðunni að eld­gos á Reykja­nesi breytir mati og við­horfum sér­fræðinga og al­mennings til flug­vallar­kostsins í Hvassa­hrauni og enn einu sinni kemur í ljós að Reykja­víkur­flug­völlur er afar mikil­vægur hvort sem litið er á hann sem vara­flug­völl eða al­mennan flug­völl fyrir innan­lands­flug, sjúkra­flug, þyrlu­þjónustu Land­helgis­gæslunnar o.fl. Þegar Hvassa­hraun þótti væn­legasti staðurinn fyrir upp­byggingu flug­vallar byggði það á spám um að ekki myndi gjósa á Reykja­nes­skaga næstu tvær aldir.“

Ingi­björg segir að nú sé komin upp ný staða sem ekki sé hægt að líta fram­hjá.

„Veður­stofan hefur það verk­efni nú að meta á­hættuna og stefnt er að því að hún skili því verk­efni af sér á fyrri­hluta næsta árs. Ef niður­staða þess verk­efnis leiðir í ljós að Hvassa­hraun sé ekki væn­legur kostur þarf að skoða hvort og ef annar og betri staður finnst. Slíkt tekur mörg ár, en það tekur um 15-20 ár að meta, hanna og byggja slíkan völl. Á sama tíma eru önnur stór og dýr verk­efni fram­undan s.s. Sunda­braut, Borgar­lína og Land­spítali, á­samt því að bæta þarf og byggja upp flug­velli á Akur­eyri og Egils­stöðum svo nýta megi þá flug­velli betur þar sem kröfur eru sí­fellt að aukast, bæði vegna ferða­þjónustu og frakt­flutninga á fers­kvöru.“

„Styrkur Reykja­víkur­flug­vallar er gríðar­legur. Mikil­vægt er að hefjast handa við að efla hann enn frekar og bæta. Reykja­víkur­flug­völlur er sam­fé­lags­lega mikil­vægur, ná­lægð við mið­borg, stjórn­sýslu, há­skóla og Land­spítala spilar þar lykil­hlut­verk. Í um­ræðunni um upp­byggingu í­búða­byggðar í Vatns­mýrinni gleymist oft mikil­vægi ná­lægðar Reykja­víkur­flug­vallar við Land­spítalann.“

„Sam­kvæmt lögum eiga allir lands­menn rétt á sömu heil­brigðis­þjónustu. Í því sam­hengi er mikil­vægt að ein­falt sé að nálgast þá þjónustu, flug­völlur í Reykja­vík tryggir það. Vissu­lega er nauð­syn­legt að bæta heil­brigðis­þjónustu út á landi en ó­raun­hæft er að veita alla þá þjónustu þar sem þörf kann að vera á. Þá er völlurinn einnig afar mikil­vægur fyrir ferða­þjónustu um allt land. Á næstu árum er fyrir­séð að miklar tækni­fram­farir komi til með að eiga sér stað í fluginu. Raf­magns­flug­vélar eru á næsta leiti og Reykja­víkur­flug­völlur getur orðið einn af styrk­leikum borgarinnar til næstu ára­tuga með raf­magns­flug­vélar í notkun ná­lægt stærsta at­vinnu og há­skóla­svæði höfuð­borgarinnar, vísinda og grósku í ný­sköpun í Reykja­vík Science City og með Land­spítala á sama svæði.“

„Ef litið er til skýrslu vinnu­hóps sem hét „Flug­vallar­kostir á suð­vestur­hluta landsins“ (skýrsla Eyjólfs Árna Rafns­sonar frá árinu 2019), er ekkert sem bendir til þess að Reykja­víkur­flug­völlur fari næstu 15-20 árin og afar vafa­samt að Hvassa­hraun sé á­lit­legur kostur, ekki síst í ljósi síðustu at­burða, þótt hann komi þar helst til greina. Vegna ó­vissu hefur Reykja­víkur­flug­völlur ekki fengið nauð­syn­lega yfir­halningu í 20 ár. Beðið hefur verið með við­hald vegna hug­mynda um nýjan flug­völl sem nú virðast vera að renna út í sandinn, já eða út í hraun. Við þurfum að hætta þessari ó­vissu um Reykja­víkur­flug­völl og þrengja ekki meir að vellinum. Nú þarf að láta hendur standa fram úr ermum, við getum ekki látið önnur 20 ár líða,“ skrifar Ingi­björg að lokum.