Ingibjörg ritstjóri hjá CNN í Stjórnandanum

Starfsmaður mánaðarins hjá FKA, Ingibjörg Þórðardóttir, ritstjóri erlendra frétta hjá CNN Digital, bæjarstjóri og ritstjóri. Það er fjölbreyttur hópur kvenna í þættinum Stjórnandanum að vanda.

Í síðasta þætti er leitað svara við hvað er hefðbundið á sérstökum tímum og ræðum um innviðauppbyggingu, fjölbreytileika og fjöll.

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði ræðir um tekjustofna sveitafélaga fyrir og eftir Covid, innviða uppbyggingu, fjallið Kirkjufell og margar breytingar sem við erum að upplifa.

Alfa Jóhannsdóttir á Sauðárkróki fjallar um fyrsta Barnvæna sveitarfélag Íslands og Diana Mjoll Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Tanni Travel ræðir um starf stjórnandans í ferðaþjónustu og deilir reynslu sinni og helstu áskorunum á tímum Covid.

„Ég er starfsmaður mánaðarins,“ segir svo ritstjórinn og framkvæmdastjórinn Auður Ingibjörg Ottesen hjá Sumarhúsið og garðurinn. Auður er formaður FKA-Suðurlandi og það er lítið mál fyrir hana að fjalla um öflugt starfið.

Ingibjörg Stefánsdóttir, Yoga Shala ræðir um kvíða, stjórnun og frá spennandi verkefnum þar sem hún vinnur með kvenna hópum í Coaching. Nafna hennar Ingibjörg Þórðardóttir ritstjóri erlendra frétta hjá CNN Digital ræðir sjálfbærni, jafnrétti, fjölbreytni í svona alþjóðlegu fyrirtæki.

Stjórnandinn með Hulda Bjarnadóttir á þriðjudagskvöldum á Hringbraut kl. 21.30.

Þáttinn má sjá hér að neðan: