Ingi­björg með opið bréf til Gunnars í Krossinum: „Veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta“

„Gunnar, ég vona að þú getir svarað nokkrum spurningum. Ég er búin að vera bú­sett er­lendis í ára­tugi og fylgist þar af leiðandi stopult með á Ís­landi. Ég hef hins vegar rekið augun núna upp á síð­kastið, í yfir­lýsingar frá þér sem ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir,“ skrifar Ingi­björg Kristín Jóns­dóttir, dósent í menntunar­fræðum, í opnu bréfi til Gunnars í krossinum fyrir helgi.

„Þú telur eld­gos á Reykja­nes­skaga vera tákn reiði guðs vegna sam­kyn­hneigðar, eða ef ég skil þetta rétt reiði guðs vegna orða biskups­ritara um marg­vís­legar myndir guðs og að birtingar­mynd okkar tíma væri Jesús sem sam­kyn­hneigður eða trans. Eld­gos á Reykja­nes­skaga eða orð biskups­ritara voru hvorugt sér­stakt undrunar­efni, men orð þín um reiði guðs gerðu mig ekki bara undrandi heldur fann ég fyrir ein­hverjum við­bjóði sem ég á erfitt með að lýsa. Ég eyði ekki tárum í svona, ég glotti frekar. Við­bjóðurinn kemur af að svona yfir­lýsingar eru settar fram til að gera fólk hrætt. Að hræða fólk með guði hefur verið valda­tæki í þúsundir ára. Hægt er að túlka orð þín þannig „ef þið hlustið ekki á mig og hagið ykkur eins og mér finnst að þið eigið að haga ykkur, verður guð reiður“. Hvaðan færð þú um­boð fyrir svona vald­beitingu?“

„Ert þú í beinu sam­bandi við guð og hvernig fer það sam­band fram? Segir hán þér eitt­hvað þegar þú sefur á nóttunni, eða er himna­ríki net­tengt svo þú getir talað við hán á Skype?“

„Jesús boðaði kær­leika gagn­vart öllum mann­eskjum. Hann stoppaði lýðinn sem ætlaði að grýta vændis­konuna og sagði „sá yðar sem synd­laus er kasti fyrsta steininum“.

Ingi­björg segir að barna­börnin sín eiga tvær mæður og þeirra upp­haf er m.a. frá sæðis­frumum gefnum af sæðis­gjafa.

„Jesús sagði „leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því þeirra er guðs­ríkið“. Barna­börnin mín eru sak­laus, fal­leg og yndis­leg, og enginn skal voga sér að líta á þau sem af­rakstur syndar. Þau eiga góðar mæður og líður vel í góðri fjöl­skyldu. Það hafa engin eld­gos verið í Noregi síðan þau fæddust.“

„Sam­kyn­hneigð var bönnuð með lögum fram til 1972 (alla­vegana í Noregi), en það var ein­göngu bannað hjá karl­mönnum. Konur voru ekki taldar hafa kyn­hvöt. Ég hef aldrei fundið neitt í biblíunni um að Jesús hafi talað um sam­kyn­hneigð, en það er eitt­hvað í gamla testa­mentinu um að karl­menn megi ekki láta sæði sitt falla ó­notað til jarðar. Það er líka í gamla testa­mentinu talað um þennan reiða guð sem Jesús virðist hafa mildað. Þetta með reiði guðs var sem sé úr­elt og gamal­dags fyrir tvö þúsund árum og svo tekur þú þetta upp,“ skrifar Ingi­björg.

„Það er reyndar vert að velta fyrir sér hvernig hægt er að ætlast til þess að sæði karl­manns fari alltaf í skaut konu. Ætli þeir sem skrifuðu þetta hafi haft margar konur til að skvetta úr sér þegar þeim var mál? Heldur þú að þeir hafi getað beðið eftir einni konu sem var alltaf barns­hafandi eða að fæða barn? Varla hafa þeir sængað með sinni konu rétt á meðan hún fæddi barn. Kannski þeir hafi hjálpað sér sjálfir í laumi.“

„Ís­land varð til úr eld­gosum og það löngu áður en mann­skepnan varð til. Yfir hverju reiddist guð í upp­hafi? Enn og aftur, hvaðan kemur þitt um­boð til að til­kynna ís­lenskri þjóð um reiði guðs?“

„Vonast eftir svari,“ skrifar Ingi­björg að lokum.