Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, fyrrverandi varaforseti ASÍ og fyrrverandi stjórnarmaður í VR, vandar Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, ekki kveðjurnar.
Hringbraut sagði í gær frá því að Ragnari væri misboðið eftir skrif Ingibjargar á dögunum. Í grein sinni sagði hún að helsta hlutverk Ragnars á sviði sjúkrasjóðs VR hafi verið að rýra réttindi félagsmanna stórlega með „fullkomlega ábyrgðarlausri auglýsingaherferð um kulnun, sem varð til þess að ásókn í sjóði stéttarfélaganna óx upp úr öllu valdi svo að stefnir í algjört óefni.“
Ingibjörg er stuðningsmaður Helgu Guðrúnar Jónasdóttur sem nú berst við Ragnar um formannsstöðuna í VR.
Ragnar svaraði þessum skrifum fullum hálsi í gær og sagðist honum vera verulega misboðið.
Sjá einnig: Ragnari gróflega misboðið: „Ég á bara ekki til eitt einasta aukatekið orð“
„Mótframboðið vill meina að þúsundir félagsmanna okkar, og annara stéttarfélaga, séu að gera sér upp veikindi. Vegna þess að þau sáu auglýsingu frá VR. Að þúsundir kvenna, margar hverjar einstæðar mæður, hafi ekki örmagnast vegna langvarandi álags heldur hafi fengið hugmynd í gegnum auglýsingaherferð VR um hvernig svindla megi á sjúkrasjóðum stéttarfélaganna eða ná út úr þeim peningum. Ég á bara ekki til eitt einasta aukatekið orð,“ sagði hann.
Ingibjörg svaraði skrifum Ragnars á Vísi í morgun þar sem hún sagðist hafa áhyggjur af VR og að of margir væru að yfirgefa félagið.
„Ragnar Þór notar þá lúalegu aðferð í svari við grein minni að gera mér upp viðhorf sem hann síðan hneykslast á. Hann er samur við sig í óheiðarlegum málflutningi og tónninn í grein hans er yfirlætislegur eins og hann á vana til,“ segir hún.
Ingibjörg segir að svo virðist vera sem það hafi farið fyrir brjóstið á formanninum að hann hún benti á kostnaðarsamar auglýsingaherferðir sem skýra mögulega að hluta ört vaxandi rekstrarkostnað á skrifstofu félagsins. Segist hún hafa nefnt sem dæmi herferð VR um kulnun og streitu og nú stuðningslán til heimila án þess að nokkuð liggi fyrir um framkvæmdina.
„Með þessu vekur VR falsvonir. Það er ekki fallega gert gagnvart þeim sem treysta félaginu. Til viðbótar mætti rifja upp þegar Ragnar Þór ætlaði að leysa vanda leigjenda með því m.a. að láta VR kaupa blokk. Ekkert hefur heyrst meira af þeim áformum,“ segir hún og endar grein sína á þessum orðum:
„Þannig er þetta margt hjá Ragnari, aðalatriðið er að auglýsa sig, komast í fréttirnar, ekkert er hirt um eftirleikinn og kostnaðinn. Félagsmenn í VR eiga betra skilið. Þeir eiga skilið formann sem mun að vinna að bættum kjörum alls verslunar- og skrifstofufólks, formann sem hafnar lýðskrumi.“