Áhrifavaldurinn Ingibjörg Eyfjörð lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu á laugardaginn að einstaklingur neitaði að virða grímuskyldu og reiddist þegar Ingibjörg benti viðkomandi á að setja hana upp.
„Í gær fór ég að skæla í einni vinnunni minni því það var manneskja sem virti ekki grímuskyldu og þegar ég benti aðilanum á það varð hann reiður við mig,“ segir Ingibjörg á Twitter í gær. „Því ég set náttúrulega reglurnar og finnst svo gaman að vera með grímu í 8 klst að ég vill bara deila gleðinni með öðrum. Duh.“
Sigmundur nokkur sagði að þetta væru fáránleg viðbrögð að rífast við fólk sem framfylgir reglum sem vernda eiga viðkvæma hópa fyrir Covid-smitum. Ingibjörg er sammála því: „En fyrir utan það þýðir nákvæmlega ekki neitt að rífast í mér ef hún hatar grímur og grímuskyldu. Ég framfylgi þeim reglum sem mér eru settar á mínum vinnustað sem ég ÞARF að vinna á til að sjá fyrir fjölskyldunni minni.“
Margir sýndu Ingibjörgu samúð, Erna Ýr Öldudóttir, blaðakona og fyrrum formaður framkvæmdaráðs Pírata, var ekki þar á meðal. „En af hverju varstu að skipta þér af því?,“ spurði hún.
Það væri afskiptasemi að skipta sér að grímunotkun þar sem grímuskylda: „Hvað ætlaði hún að hafa upp úr þessu? Verða kosin starfsmaður mánaðarins?,“ spurði Erna. „Ég er bara að spyrja. Fyrst er hún að bullya einhvern viðskiptavin með nýfengnum völdum og fer svo að grenja þegar hann sættir sig ekki við það. Mér finnst það bara fyndið.“
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur var fljótur að bregðast við ummælum Ernu:
„Hver meiddi hægriöfgamanninn sem ég nenni ekki að verðlauna með reply? Er hann bot? Grímuskyldan er hundfúl en hún er ekki þér að kenna og við erum bara öll sama. Að öskra á þig yfir því er algert hámark heimtufrekjunnar.“