„Rétt í þessu barst mér afmælisgjöf, stefna frá föður sem vill að ég borgi honum fimm milljónir króna vegna þess að ég leyfði dætrum hans að segja sögu sína nafnlaust.“
Þetta segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, í færslu á Facebook-síðu sinni. Ingibjörg fagnar 41 árs afmæli sínu í dag en sem fyrr segir fékk hún stefnuna á sjálfan afmælisdaginn. Um er að ræða föður stúlkna sem sögðu sögu sína í Stundinni.
„Þær voru neyddar til að umgangast föður sinn, þrátt fyrir að hafa jafnt í dag sem í æsku greint frá því að hann hefði misnotað þær kynferðislega. Markmið systranna með frásögninni var að fá fólk til þess að taka raddir barna alvarlega, en hann ákvað að bregðast við frásögninni með því að draga mig persónulega og Stundina fyrir dóm fyrir að veita þeim vettvang til þess að tjá sig. Tveir dagar eru liðnir frá því að lögmaður þessa manns sendi greiðsluáskorun þar sem fimm milljóna var krafist á næstu sjö dögum, ellegar yrði greiðslan innheimt fyrir dómstólum. Nú hafa þau sent stefnu,“ segir Ingibjörg sem er ritstjóri Stundarinnar ásamt Jóni Trausta Reynissyni sem er einnig framkvæmdastjóri.
Hún segir í færslu sinni að ekki komi til greina að greiða manninum fimm milljónir króna fyrir það eitt að dætur hans fengu að segja sögu sína nafnlaust, í umfjöllun sem var studd gögnum, til að gagnrýna hvernig kerfið tók á reynslu þeirra í æsku.
„Fólk sem heimtar milljónir fyrir og reynir að þagga niður í börnunum sínum ætti að byrja á því að líta í eigin barm,“ segir Ingibjörg sem segist, þrátt fyrir þetta, ætla að njóta afmælisdagsins.