Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, segir myndir sem teknar voru að talningu lokinni í Borgarnesi af kjörkössum og birtar voru á Instagram ekki vera brot. Fréttablaðið greinir frá málinu.
Um er að ræða tengdadóttur hótelstjóra Borgarness, Sonju Blomsterberg. Magnús Davíð Norðdahl, frambjóðandi Pírata, segir við Fréttablaðið að myndirnar virðist sýna að aðgangur hafi verið greiðlegur að atkvæðum á milli talninga.
Ingi segir þetta ekki vera brot. „Nei, það er meira að segja streymt stundum frá talningu. Það eru ekki allir sem fá að fara inn í salinn en margir sem geta tekið mynd.“
„Hver manneskjan er skiptir kannski ekki öllu máli, heldur þetta sem ég er að segja. Þetta er svo absúrd,“ segir Magnús.
„En hún talar um að talningu sé lokið. Þá er þetta á milli talninga, það er enginn í salnum. Hún er í salnum. Kjörgögnin eru óinnsigluð, þannig að hvað þarf meira?“