„Við viljum ekki sjá fjórðu bylgju þessa andstyggðarfaraldurs. Það er ríkisstjórnarinnar að sjá til þess að vernda okkur gegn henni og það strax,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Í grein sinni kallar Inga, enn eina ferðina, eftir ákveðnari viðbrögðum stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Blikur eru á lofti eftir að smit utan sóttkvíar greindust hér um helgina og er ljóst að dagurinn í dag verður stór með tilliti til hugsanlegrar fjórðu bylgju.
„Það hefur ekki farið fram hjá neinum að enn á ný hefur veiran lekið inn í samfélag okkar gegnum landamærin,“ segir Inga sem kveðst vona að við náum utan um smitin án þess að fjórða bylgja faraldursins fari af stað.
„Ég mæli fyrir munn mjög margra þegar ég alhæfi og segi: Við erum búin að fá nóg. Hann er með hreinum ólíkindum þessi eilífi hringlandaháttur við að taka afgerandi og fyrirbyggjandi ákvarðanir hvað varðar landamærin sem allir vita að eru veikasti hlekkurinn í okkar sóttvörnum. Stigin hafa verið hænuskref í rétta átt en alls ekki nógu stór. Spyrja má í hvaða þágu landamærunum er haldið lekum í stað tryggum?“
Inga segir að reynslan hafi kennt okkur hversu smitandi þessi veira er. Inga hefur sjálf talað fyrir því að beita öllum tiltækum ráðum til að halda veirunni frá landinu, í því skyni að freista þess að halda samfélaginu okkar opnu innan þeirra. Segir hún að forsenda þess sé að loka landamærunum.
„Þessa aðferð notuðu Nýsjálendingar. Reynslan þar er búin að sýna að þar tóku stjórnvöld hárréttar ákvarðanir. Engan sérfræðing þarf til að sjá raunverulegan ábata fyrir allt samfélagið af því að við fáum að lifa frjáls innanlands. Á meðan efnahagsbati er hafinn á Nýja-Sjálandi þar sem hagvöxtur í landinu mældist 14% á tímabilinu frá júlí fram í september 2020 (tökum eftir; í miðjum heimsfaraldri), þá hrynur allt í kringum okkur.“
Inga bendir á að staðan hér sé sú að 27.000 eru án vinnu. Þá sé áætlað að bæta verði við tugum milljarða inn í atvinnuleysistryggingasjóð á árinu, til viðbótar við þá ríflega 70 milljarða sem þegar eru greiddir til atvinnulausra.
„Verðbólgan mælist nú 4,3% með tilheyrandi skuldavexti heimilanna. Skuldir þeirra hafa vaxið um tugi milljarða króna á stuttum tíma. Fjármálaráðherra og seðlabankastjóri vildu telja okkur trú um að ekki þyrfti að hafa áhyggjur af verðtryggðum lánum heimilanna, engin teikn væru á lofti um að verðbólgan færi af stað. En staðreyndirnar tala sínu máli,“ segir Inga sem endar grein sína á þessum orðum:
„Heigulsháttur stjórnvalda og fálmkenndar opnanir/ lokanir hafa kostað okkur óafsakanlegan, óafturkræfan skaða sem aldrei hefði þurft að verða af þeirri stærðargráðu sem raun ber vitni. Stjórnvöld sem sveiflast eins og pendúll, og vita ekki hvort þau eru að koma eða fara, eru vanhæf stjórnvöld. Við viljum ekki sjá fjórðu bylgju þessa andstyggðarfaraldurs. Það er ríkisstjórnarinnar að sjá til þess að vernda okkur gegn henni og það strax. Við viljum njóta þeirra forréttinda sem fylgja því að búa örugg á fallegu eyjunni okkar.“