„Er ekkert undarlegt við það, að á sama tíma og allir formenn þingflokka á Alþingi vinna að breytingum stjórnarskrárinnar, þá skuli það einungis vera formaður Flokks fólksins sem krefst fullrar greiðslu fyrir aðgang að sjávarauðlindinni? Aðrir vilja „sanngjarnt“ eða „eðlilegt verð fyrir aflann.“
Þetta segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Þar skrifar Inga um sjávarauðlindina og kvótakerfið og segir að setja eigi reglur um fullt verð fyrir aðgang, ekki bara sjávarauðlindinni heldur einnig öðrum auðlindum sem landið okkar hefur að gefa og eru ekki skilgreindar sem einkaeign.
„Þjóðin tók af allan vafa“
„Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs haustið 2012 eftir langt ferli endurskoðunarvinnu um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands kom skýr vilji þjóðarinnar í ljós hvað lýtur að því að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðareign. Þjóðin tók af allan vafa þar sem 82,9% þeirra sem tóku afstöðu sögðu JÁ.“
Inga segir að það óásættanlegt að ætla að fá „sanngjarnt“ eða „eðlilegt“ verð fyrir aðgang að sjávarauðlindinni. Það gangi ekki að það sé undir geðþótta hagsmunatengdra stjórnmálamanna hvað telst sanngjarnt eða eðlilegt gjald hverju sinni. Þannig gæti króna þótt sanngjarnt hjá einhverjum en 0 krónur hjá einhverjum öðrum.
„Hundruð milljarða hafa flætt til fárra fjölskyldna sem telja sig eiga nánast allan óveiddan fisk í sjónum umhverfis landið og það til framtíðar. Milljarðar hafa farið í að sölsa undir sig eignarhald í nánast öllu sem nöfnum tjáir að nefna og koma sjávarútvegi ekkert við. Allt í boði hagsmunagæslupólitíkusanna sem gefa lítið fyrir samfélagslega ábyrgð og velferð þeirra sem ekki hafa ráð á að styrkja þá með stæl. Það er hver að verða síðastur til að taka í taumana og neita að verja þetta rán á því sem þjóðin á öll saman.“
Arðránskerfi
Inga er þeirrar skoðunar að það sé löngu kominn tími til að alþingismenn axli þá ábyrgð sem þeim ber. „Það er ekki nóg að hrópa að við búum við besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi þegar staðreyndin er sú að við búum við eitt það versta arðránskerfi sem um getur.“
Inga segir að Flokkur fólksins vilji afturkalla allar fiskveiðiheimildir á næstu fimm árum og þá reyni á lagaákvæði um að afturköllun tímabundinna veiðiheimilda myndi ekki bótakröfu á ríkissjóð.
„Veiðiheimildir á öllum nytjastofnum í íslenskri lögsögu verði boðnar upp. Það er þrugl að þeir ríku gætu keypt allan aflann og að það yrði algjör samþjöppun í greininni. Hún er þegar til staðar. Flokkur fólksins vill kvótann heim. Þjóðin á sjávarauðlindina sem og allar aðrar auðlindir landsins sem ekki eru í einkaeign.“