„Þegar vöruverð er hækkað án þess að innkaupsverð hafi hækkað til muna og án þess að söluaðila sé það nauðsynlegt vegna rekstrarskilyrða má ætla að slík hækkun sé til komin vegna þess að söluaðili verður þess áskynja að eftirspurn eftir vörunni hafi aukist vegna hættuástands. Slíkt á að vera ólöglegt, enda ætti engin að græða á því að hætta steðji að almenningi.“
Þetta segir í greinargerð með frumvarpi sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram á Alþingi. Friumvarpið hefur það markmið að koma í veg fyrir okur gagnvart almenningi þegar hættuástand skapar aukna eftirspurn eftir ákveðnum vörum eða skerðir framboð þeirra.
Á dögunum var greint frá því að andlitsgrímur hefðu víða hækkað í verði í kjölfar vaxandi eftirspurnar.
Verði frumvarpið að lögum getur ríkislögreglustjóri kveðið á um hámarkssöluverð eða hámarksálagningu á innkaupsverð tiltekinna vara eða vörutegunda. Einstaklingar eða fyrirtæki sem brjóta gegn þessum fyrirmælum yfirvalda gætu þannig sætt sektum allt að 10 milljónir króna en að lágmarki 100 þúsund krónur. Þá getur brot af þessu tagi varðað allt að þriggja mánaða fangelsi.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að þegar hættuástand ríkir geti það haft veruleg áhrif á verðlag tiltekinna vara.
„Eðli hættunnar eða viðbrögð stjórnvalda við hættunni geta leitt til þess að eftirspurn eftir tilteknum vörum eykst verulega eða þá að verulega dregur úr framboði á vörum. Í slíkum tilfellum skapast freistnivandi hjá þeim söluaðilum sem framleiða eða eiga birgðir af slíkum vörum. Þeir geta þá selt vörur sínar á okurverði. Það getur aukið áhættu á samfélagslegu tjóni af völdum hættuástands og auk þess veldur það óneitanlega fjártjóni hjá almenningi til skamms tíma litið,“ segir í greinargerðinni.
Kórónuveirufaraldurinn er nefndur sem dæmi og er bent á það í greinargerð með frumvarpinu að fregnir hafi borist af því að verð á sóttvarnavörum, grímum, spritti og fleiru hafi hækkað verulega og að óprúttnir aðilar hafi hamstrað til sín slíkra vörur á fyrri stigum faraldursins í gróðavon.
„Almennt má gera ráð fyrir því að flestir markaðsaðilar séu samfélagslega meðvitaðir og selji vörur á sanngjörnu verði á hættutímum en þegar freistnivandi sem þessi er fyrri hendi þá þarf löggjöf að veita stjórnvöldum færi á að grípa í taumana. Það yrði með öllu ótækt ef, svo dæmi sé tekið, efnaminna fólk gæti ekki fylgt fyrirmælum stjórnvalda um sóttvarnaaðgerðir vegna þess að sóttvarnabúnaður hefði hækkað verulega í verði á skömmum tíma.“