„Þessi vanhæfa ríkisstjórn á að sjá sóma sinn í því að pakka saman og pilla sig,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga hefur margoft lýst yfir áhyggjum af COVID-19-smitum en blikur eru á lofti í faraldrinum þar sem hvorki fleiri né færri en sautján smit greindust í gær. Það er mesti fjöldi á einum degi síðan í nóvember síðastliðnum og óttast margir að gærdagurinn marki upphaf fjórðu bylgjunnar hér á landi.
Inga Sæland deilir viðtali Vísis við Kára Stefánsson á Facebook-síðu sinni og vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar.
„Hún hefur sýnt svo ekki verður á móti mælt hvaða áhættu hún tekur leynt og ljóst varðandi líf okkar og heilsu. Efnahagsaðgerðirnar eru settar í fyrsta sæti og fórnarkostnaðurinn sem hún réttlætir að greiða erum VIÐ!“
Í viðtalinu sagðist Kári telja að fjórða bylgjan sé hafin hér á landi og telur hann að kominn sé tími til að skella öllu í lás. Vill Kári sjá sambærilegar samkomutakmarkanir og voru þegar þær voru harðastar fyrr í vetur.
Guðrún Kvaran, prófessor í íslensku, skrifaði skemmtilega grein um sögnina „að pilla sig“ á Vísindavefinn árið 2011. Benti hún á að sögnin væri notuð í óformlegu máli um að „fara, koma sér burt, drífa sig“ og væri nær eingöngu notuð í neikvæðum skammartóni.
Þessi vanhæfa ríkisstjórn á að sjá sóma sinn í því að pakka saman og pylla sig. Hún hefur sýnt svo ekki verður á móti...
Posted by Inga Sæland on Miðvikudagur, 24. mars 2021