Inga Sæland útskýrir fjarveru sína frá Alþingi

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur verið fjarri góðu gamni á Alþingi undanfarna daga. Varamaður hennar, Helga Þórðardóttir, tók sæti á Alþingi þann 22. mars síðastliðinn.

Inga segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún hafi fengið margar fyrirspurnir um það af hverju hún sjáist ekki í þinginu þessa dagana. Staðreyndin er sú að Inga hefur verið að glíma við veikindi en ætlar sér að mæta af fullum krafti aftur til leiks, vonandi áður en langt um líður.

„Ég hef verið að glíma við smá lasleika sem ekki þarf að mikla neitt fyrir sér en þó svo að ég þarf að taka á þessu og reyna mitt til að ná fullri orku á ný, ekki veitir af í baráttunni okkar. Að sjálfsögðu mun ég koma þríefld til baka. Ástarkveðjur til ykkar allra og haldið áfram að sakna mín,“ segir hún.