Inga Sæ­land sorg­mædd: „Með slíkum ó­líkindum að ég er nánast kjaft­stopp“

„Búið er að dreifa hörmu­legu þing­máli á Al­þingi. Máli sem vekur með mér bæði hrylling og sorg. Máli sem fær mig til að hugsa um á hvaða veg­ferð við séum sem þjóð,“ segir Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag. Yfir­skrift greinarinnar er: Fóstur­eyðinga­mið­stöðin Ís­land?

Málið sem Inga vísar til er þings­á­lyktunar­til­laga um að­gengi ein­stak­linga sem ferðast til Ís­lands að þungunar­rofi. Inga vísar í texta til­lögunnar þar sem segir:

„Al­þingi á­lyktar að fela heil­brigðis­ráð­herra að tryggja að ein­staklingar sem ferðast hingað til lands í því skyni að gangast undir þungunar­rof fái við­eig­andi heil­brigðis­þjónustu. Þetta verði bundið því skil­yrði að við­komandi megi ekki gangast undir þungunar­rof vegna lög­bundinna hindrana í heima­landinu og upp­fylli skil­yrði í lögum um þungunar­rof, nr. 43/2019. Þá þurfi við­komandi að geta fram­vísað evrópska sjúkra­trygginga­kortinu.“

Til­lagan er lögð fram af ní­tján þing­mönnum og er Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þing­maður utan flokka, fyrst flutnings­maður. „Annar utan­flokka­þing­maður og þing­menn frá Vinstri grænum, Sam­fylkingu, Við­reisn og Pírötum eru með. Þarna eru m.a. Þor­gerður Katrín Gunnars­dóttir, for­maður Við­reisnar, Logi Már Einars­son, for­maður Sam­fylkingar, og Guð­jón Brjáns­son, annar vara­for­seti Al­þingis.“

Inga segir að þessir þing­menn – og senni­lega flestir flokks­fé­laga þeirra á þingi – vilji að Ís­land verði eins­konar frí­ríki fóstur­eyðinga í Evrópu: „Að ís­lenska heil­brigðis­kerfið, sem berst nú þegar í bökkum vegna á­lags og fjár­skorts, taki að sér að eyða ó­full­burða börnum allt til loka 22. viku með­göngu fyrir fólk sem vill komast fram hjá lögum í eigin heima­landi.“

Inga vísar í mál sem sam­þykkt var á Al­þingi í fyrra og varðaði heimild til fóstur­eyðingar allt til loka 22. viku með­göngu. Inga lagðist hart gegn málinu á sínum tíma og segir hún að af­staða hennar og Flokks fólksins hafi ekkert breyst.

„Þetta skal gert undir fána mann­réttinda og kven­frelsis. Þetta er sama fólkið og galar hátt um mann­réttindi flótta­barna. Um leið hunsar það mann­réttindi og lífs­rétt ó­fæddra barna. Þetta eru al­þingis­menn sem telja það sjálf­sagt að Ís­land sé með þessu að hafa bein af­skipti af innan­ríkis­málum full­valda lýð­ræðis­ríkis eins og Pól­lands í þessu til­viki. Lýð­skrumið, tvö­feldnin, hræsnin, hrokinn og lífs­fyrir­litningin sem kristallast í þessari þings­á­lyktunar­til­lögu er með slíkum ó­líkindum að ég er nánast kjaft­stopp og gerist nú ekki oft,“ segir Inga en henni er aug­ljós­lega mikið niðri fyrir vegna málsins.

„Ég hefði ekki trúað því að ó­reyndu að ég ætti eftir að sjá svona mál koma fram á Al­þingi frekar en húrra- og gleði­hrópin sem ég upp­lifði þar þegar heimiluð var eyðing á ó­fæddum börnum til loka 22. viku með­göngu eins og gert var fyrir skemmstu. En kannski þarf það ekki að koma á ó­vart. Í boði Sjálf­stæðis­flokksins sitjum við uppi með for­sætis­ráð­herra sem hefur lýst því yfir í ræðu­stól Al­þingis að helst vildi hún sjá að konur ættu að mega sjálf­ræðis síns vegna láta drepa ó­fædd börn sín fram að fæðingu. Þetta munum við í Flokki fólksins aldrei sam­þykkja. ALDREI!“