„Við hrúgum erlendum ferðamönnum í sóttvarnarhús, 10 þús. kall með mat er kostnaðurinn pr. herbergi, restina borga íslenskir skattgreiðendur,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á Facebook-síðu sinni.
Inga hefur margoft lýst áhyggjum sínum af kórónuveirufaraldrinum og hefur hún viljað ganga skrefinu lengra en margir aðrir stjórnmálamenn þegar kemur að lokun landsins. Í gær var byrjað að taka á móti þeim sem koma til landsins og setja þá sem ekki eru með bólusetningarvottorð í sóttvarnarhús. Inga Sæland vill þó að þeir sem hyggjast heimsækja landið haldi sig bara heima og láti það að vera að koma til Íslands.
„Flokkur Fólksins segir ferðamönnum að gjöra svo vel að halda sig heima í blússandi heimsfaraldri og virða líf annara og heilsu ekki að vettugi. Það er með hreinum ólíkindum að stjórnvöld skuli spila aðra eins rúllettu með líf okkar og heilsu. Þetta er VANHÆF ríkisstjórn sem veit ekki hvort hún er að koma eða fara og hefur fyrir löngu sett stjórnartaumana í fangið á sérhagsmunum ferðaþjónustunnar.“
Inga minnist svo á rútuferðir, pakkaðar af fólki, til að skoða eldgosið í Geldingadölum á sama sama tíma og skíðasvæðin eru lokuð um páskana.
„Páskarnir eru einmitt aðal tekjulind skíðasvæðanna. Mér er gjörsamlega misboðið að þurfa að horfa upp á annað eins klúður og vanhæfni. Stjórnvöld sem taka áhættuna og rústa 90% af hagkerfi okkar fyrir hin 10% sem ferðamennirnir telja eiga að víkja strax fyrir þeim sem kunna að takast á við vanda sem þennan án þess að fórna samfélaginu sem þeir eiga að vernda.“
Inga Sæland endar harðorðan pistil sinn á þessum orðum:
„Talandi um meðalhóf! Fyrir hverja? Erlenda ferðamenn? Það tók þau ekki langan tíma að þurrka út fallega græna litinn sem Ísland eina land Evrópu fékk að skarta um tíma. Nú orðin appelsínugul og siglum hratt og örugglega á eldrauða svæðið. Það verður sennilega ekki fyrr en þangað er komið sem sérhagsmunagæslu-varðliðarnir verða sáttir.“
Við hrúgum erlendum ferðamönnum í sóttvarnarhús, 10 þús. kall með mat er kostnðurinn pr. herbergi, restina borga...
Posted by Inga Sæland on Fimmtudagur, 1. apríl 2021