Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er ekki par sátt við sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda gegn Covid-19. Segir hún í færslu á Facebook að það sem Ísland hefði alltaf átt að gera sé að njóta þess að vera afskekkt eyja og halda innviðunum gangandi.
„Með öðrum orðum, verja okkur gegn veirunni eftir fremsta megni og fá að lifa hér eðlilegu lífi innanlands með fjölskylduknúsum og sameiginlegum hátíðarstundum með fjölskyldu og vinum, með heimsókn til ömmu og afa, með opnum öllum sundlaugum, íþróttarsölum, skólum og skemtunum. Úff get ekki talið það nógsamlega upp hvað það væri æði að fá að vera frjáls hér innan lands,“ segir Inga.
Hún er ekki par sátt við leiðina sem var farin:
„En nei, valin er leiðin að keyra heilbrigðisþjónustuna í kaf með tilheyrandi hörmungum fyrir svo miklu fleiri en þurfa að nota hana vegna Covid. Ég flokka þessar aðgerðir undir hreina og klára forheimsku og ekkert annað þar sem mannréttindahugtakið er útþynnt með öllu og hin raunverulegu mannréttindi okkar til eðlilegs lífs hér innan lands fótum troðin.“
Inga segir að þjóðin eigi betra skilið:
„Við eigum svo miklu betra skilið en að stjórnvöld hendi veirunni í andlitið á okkur án þess að við fáum rönd við reist. Staðan jafnvel orðin sú að við útskrifum okkur sjálf nú eftir að hafa greinst með veiruna.“
Hún er þó ekki að tala um að loka landamærunum.
„Það er mikill munur á því að taka fulla ábyrgð á landamærunum og að loka þeim, hreinlega hafsjór þar á milli, enda höfum við aldrei lokað landamærunum.“