„Seint hefði ég trúað því að ég ætti eftir að sjá frelsarann Jesú Krist með varalit, kinnalit og brjóst,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Í greininni skrifar Inga um auglýsingu Kirkjunnar þar sem sjá má Jesú Krist með brjóst og varalit. Um er að ræða kynningarefni fyrir Sunnudagaskólann og er óhætt að segja að margir hafi lýst skoðun sinni á málinu undanfarna daga.
Inga tilheyrir þeim hópi sem er ósáttur við myndina og segir hún dapurt að sjá hvernig æðstu embættismenn þjóðkirkjunnar, með biskup í fararbroddi, ala á upplausn og sundrung trúbræðra sinna og -systra.
„Sjálf þjóðkirkjan hefur blásið til auglýsingaherferðar þar sem sú mynd sem dregin er upp af frelsaranum særir og hryggir marga þá sem trúa í einlægni á hann. Jesús breiddi út faðminn og elskaði alla jafnt. Samtímaheimildir eru til um hann. Þess vegna er undarlegt að því skuli jafnvel hafa verið fleygt að Jesús sé hugarburður og hafi aldrei verið til. Það var hann, alveg eins og heimspekingarnir Platon og Sókrates, sem þó voru uppi mörgum öldum fyrir Krists burð, og speki þeirra enn í dag kennd við alla virtustu háskóla heims.“
Inga segir að myndin af Jesú sé í raun skopmynd og til marks um veika stöðu kirkjunnar.
„Við sem trúum á Guð vitum að Jesús er sonur hans. Mér var kennt að virða kristna trú, virða kirkjur og trúartákn, virða presta og annað starfsfólk kirkjunnar og að ég ætti að hegða mér í samræmi við kærleiksboðskap kristinnar trúar. Mér finnst eins og þjóðkirkjan sé að reyna að þvinga upp á mig þeirri sýn að Jesús Kristur hafi verið „alls konar“. Fallist ég ekki á slíkt hljóti ég að vera vond manneskja sem skilur ekki inntak kærleikans. Það sem hér er á ferð er innræting sem hefur ekkert með kristna trú að gera.“
Inga segist horfa á myndina og velta fyrir sér hvílíkt dómgreindarleysi hljóti að ráða för hjá biskupi Íslands og starfsfólki Biskupsstofu. Boðun kirkjunnar eigi að vera almenn, ekki sértæk.
„Til hvers þarf að ráðast að trúarvitund fólks með þessum hætti og um leið brjóta niður þá ímynd sem Jesús Kristur hefur haft í huga flestra þeirra sem telja sig kristinnar trúar? Hvaða markmið og tilgangur er hér að baki? Hvernig á það að þjóna kristni að efna til ófriðar og illdeilna sem hér er gert? Hér er biskup einungis að færa óvinum kirkjunnar vopn í hendur. Hún er að skemmta skrattanum. Mér finnst þetta rangt og lái mér hver sem vill.“