Inga Sæ­land rifjar upp sára reynslu: „Ég á engin orð til að lýsa á­fallinu og sorginni“

Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, minnir fólk á að vera gott við hvert annað því lífið er of dýr­mætt í nokkuð annað en kær­leika og ást.

Inga rifjaði upp á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi fæðingar­dag bróður hennar heitins, Helga Ást­valds­sonar, sem fæddist þann 17. maí árið 1957. Helgi lést af slys­förum þann 26. júlí árið 1988 en hann drukknaði þá á­samt vini sínum, Gunn­laugi Páls­syni, í miklu ó­veðri við Siglu­nes.

„Erfiðasta lífs­reynsla mín fram á þennan dag er þegar hann dó,“ segir Inga í færslu sinni. Hún segir að ó­veðrið hafi skollið á eins og hendi væri veifað og þeir, á litlum Zodiac-báti, hafi mátt sín lítils.

„Þarna missti ég bróður og minn besta vin. Ég á engin orð til að lýsa á­fallinu og sorginni í kjöl­farið,“ segir Inga sem rifjaði bróður­missinn upp í ein­lægu við­tali í Mann­lífi sem kom út á föstu­dag.

„Þegar dauðinn kom og ást­vinur fór stóð ég al­gjör­lega tóm og varnar­laus eftir. Hann var mikill tón­listar­maður og svo ó­trú­lega glæsi­legur maður, eigin­lega allar stelpurnar skotnar í honum. Þetta hafði gríðar­lega mikil á­hrif á mig og þarna lærði ég að taka lífinu aldrei sem sjálf­sögðum hlut. Frá þessum tíma­punkti hætti ég að vor­kenna sjálfri mér, brosti framan í alla og á­kvað að gera allt sem mér dytti í hug,“ sagði Inga í við­talinu.

Loka­orðin í færslu hennar gætu ef­laust margir tekið til sín.

„Verum góð við hvert annað því lífið er of dýr­mætt í nokkuð annað en kær­leika og ást.“

Í dag var afmælisdagur Helga bróa míns. Erfiðasta lífsreynsla mín fram á þennan dag er þegar hann dó. Hann drukknaði...

Posted by Inga Sæland on Sunnudagur, 17. maí 2020